Almenna verkfræðistofan hf. (AV) var stofnuð árið 1971. Almenna hefur frá upphafi veitt almenna og sérhæfða þjónustu á sviði byggingar- og vélaverkfræði og á sviði umhverfis- verkfræði, svo og náttúrufræði. Þjónustan felst í alhliða tækniráðgjöf samkvæmt óskum viðskiptavina, allt frá gerð fyrstu frumdraga og forrannsóknum til endanlegrar hönnunar mannvirkja, framkvæmda og rekstrar.
Þjónustan skiptist í 4 markaðssvið: Byggingar og iðnaður, Orka og veitur, Umhverfi og skipulag, Verkefnastjórnun auk þess rekur fyrirtækið skrifstofu á Akranesi. Allir hluthafar Almennu verkfræðistofunnar eru starfsmenn fyrirtækisins, enda er það stefna félagsins að það sé í eigu starfsmanna þess. Í stjórn sitja Gísli Karel Halldórsson (formaður), Auðunn Elíson og Bjarni Jónsson. Framkvæmdastjóri er Helgi Valdimarsson.
Almenna verkfræðistofan hf. starfrækir gæðakerfi samkvæmt kröfum ÍST EN ISO 9001:2000 og umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ÍST EN ISO 14001:2004.