Sogsvirkjanir - endurbætur

Verkefni
Endurnýjun og viðhald Sogsstöðva samkvæmt mynsturáætlun Landsvirkjunar.

Verkkaupi
Landsvirkjun.
Lýsing verkefnis
Stöðvarnar sem allar voru komnar til ára sinna þurftu nauðsynlega á endurnýjun að halda. Afla þurfti vitneskju um mannvirkin, einnig hvernig staðið var að framkvæmdum á sínum tíma þannig að endurbætur og breytinga skiluðu tilætluðum árangri. Nokkrar verkfræðistofur voru ráðnar til verksins og hver þeirra annaðist skilgreinda verkþætti.
Staðsetning 
Sogið við Þingvallaveg.
Þjónusta AV
Verkþættir AV voru mjög fjölbreyttir, úttekt og ástandsmat mannvirkja, jarðskjálftagreining mannvirkja ásamt tillögum að styrkingum, grundun, burðarþols- og lagnahönnun nýrra mannvirkja. Hönnun plana og vega innan umráðasvæðis Landsvirkjunar.
Verktími
Framkvæmdir hófust í kjölfar fyrsta útboðs 1996 og verkefnið var síðan unnið í mörgum áföngum fram til ársins 2002.