Skaftárveita

Verkefni
Verkhönnun veitu Vesturkvísla Skaftár inn á vatnasvið Tungnaár um Langasjó.

Verkkaupi
Landsvirkjun.
Lýsing verkefnis
Tilgangur Skaftárveitu er nýting hluta rennslis Skaftár til orkuframleiðslu í virkjunum í Tungnaá og Þjórsá. Vesturkvíslar Skaftár eru stíflaðar austan við Fögrufjöll og nýtt lón myndað sem fékk heitið Norðursjór. Á milli Norðursjóar og Langasjóar er grafinn skurður. Við suðvestur enda Langasjóar er inntak veituganga, en lengd ganga er 2,3 km. og hafa þau útrás í Lónakvísl en hún er ein af kvíslum Tungnaár. Reiknað er með að Langisjór dempi Skaftárhlaup að verulegu leyti og auk þess mun nær allur aur úr hlaupunum verða eftir í lónstæðum Norðursjóar og Langasjóar.
Staðsetning
Í Skaftártungu.
Þjónusta AV
Samhliða verkhönnun mannvirkja var ráðist í viðamiklar jarðfræðirannsóknir og mögulegir efnistökustaðir kannaðir. Einnig var farið ítarlega ofan í aurburðarmál.
Verktími
2003-2004.