Núpsvirkjun
Verkefni
Verkhönnun Núpsvirkjana í Neðri-Þjórsá.
Verkkaupi
Landsvirkjun.
Lýsing verkefnis
Tveir virkjanakostir voru verkhannaðir. Annars vegar eins þreps kostur þ.e. Núpsvirkjun og hins vegar tveggja þrepa kostur þ.e. Hvammsvirkjun og Holtavirkjun. Núpsvirkjun virkjar fall Þjórsár frá Núpsfjalli að Miðhúsi sem er bær undir Skarðsfjalli en til þess þarf 11,3 km. löng aðrennslisgöng. Hvammsvirkjun virkjar fall Þjórsár frá Núpsfjalli að Ölmóðsey með stuttum frárennslisgöngum 1,2 km., og frárennslisskurði 1,6 km. Holtavirkjun virkjar fall Þjórsár frá Búðafossi og niður fyrir Árnesflúðir. Holtavirkjun er án jarðganga og frárennslisskurður virkjunar er að mestu leyti í núverandi farvegi Árneskvíslar.
Staðsetning
Þjórsá við Núpsfjall.
Þjónusta AV
Samhliða verkhönnun mannvirkja var ráðist í viðamiklar jarðfræðirannsóknir og mögulegir efnistökustaðir kannaðir. Einnig sá AV um mat á umhverfisáhrifum virkjana í Neðri-Þjórsá og rannsóknum á aurburði Þjórsár neðan Búrfells.
Verktími
2002-2006.
- Dælu- og hreinsistöð Hraunsvík
- Hreinsistöð Njarðvík
- Hreinsistöðin á Akranesi
- Hreinsistöðin við Ánanaust
- Klettagarðar
- Búrfellsvirkjun
- Hágöngumiðlun
- Hólmsárvirkjun
- Kárahnjúkavirkjun
- Tengivirki Fljótsdal
- Ufsarstifla og Hraunaveita
- Norðlingaölduveita
- Núpsvirkjun
- Skaftárveita
- Skaftárvirkjun
- Vatnsfellsvirkjun
- Vatnsveita Grundarfjarðar
- OR endurnýjun veitukerfa
almenna.is