Fréttir
Yfirbyggð 50m sundlaug og Heilsurækt í Laugardal. Hönnun loftræsikerfa
Almennu verkfræðistofunni hefur verið falin hönnun loftræsikerfa í Sundlaugarbyggingu og Heilsurækt í Laugardag í framhaldi af hæfnisvali í júní síðastliðnum. Byggjendur eru Reykjavíkurborg og Björn Leifsson (World Class). Heildarstærð þessara mannvirkja er um 10.850m². Í sundlaugarbyggingunni sem Reykjavíkurborg reisir, verður fullkomin 50m innilaug með 10 brautum og verða áhorfendapallar fyrir um 400 manns.
Í tengibyggingu sundlaugarbyggingar við núverandi búningsklefa (sem einnig verða notaðir í tengslum við nýju sundlaugina) verða m.a. fundarsalir, veitingasalir og nuddstofa.
Í heilsuræktarbyggingu sem World Class reisir verða búningsklefar, baðhús, eldhús og fleiri rými í kjallara. Á 1.hæð verður rúmlega 1100m² tækjasalur með 5-6 metra lofthæð auk veitingasölu, verslana og minni æfingasala. Á 2.hæð verða skrifstofur World Class, veitingaaðstaða, fundasalir, apótek, göngudeild NFLÍ auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara, lækna o.fl.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist snemma árs 2001 og verkhönnun loftræsikerfis verði lokið á árinu 2001.
almenna.is