Fréttir

16. febrúar 2010

Vistvæn byggð stofnuð

Almenna verkfræðistofan verður einn af stofnfélögum Vistvænnar byggðar – Vettvangs um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð. Stofnfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl.16 í ráðstefnusal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Kynningarfundur án skuldbindingar verður haldinn sama dag, á sama stað kl.15.

Fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum er boðið að taka þátt í mótun sjálfbærrar þróunar manngerðs umhverfis á Íslandi með því að gerast aðilar að samtökunum.

Vaxtarsprotar
Fulltrúar opinberra verkkaupa, verkfræðistofa og arkitektastofa hafa skipað undirbúningshópinn sem boðar til stofnfundar Vistvænnar byggðar. Það er einlæg trú þeirra sem hópinn skipa að umhverfisvænir starfshættir séu vaxtarbroddurinn í mannvirkjaiðnaðinum öllum. Umræða síðustu ára um umhverfismál er farin að skila sér í áþreifanlegri stefnu og raunverulegum aðgerðum.

Íslenskt „Green building council“
Á heimsvísu eru það svonefnd Green Building Councils í hverju landi sem leiða umræðuna meðal opinberra aðila ogfagfólks. Með stofnun Vistvænnar byggðar mun Ísland eignast slíkan vettvang til að koma umhverfismálunum í framkvæmd í íslenska mannvirkjaiðnaðnum. Í Vistvænni byggð koma þeir saman sem hafa áhuga á að móta framtíðina, til þess að velja réttar leiðir að markinu og leiða umræðuna með virkri þátttöku.