Fréttir

27. október 2010

Vistbyggðarráð opnar heimasíðu

Heimasíða Vistbyggðarráðs www.vbr.is fór í loftið á dögunum.

Tilgangur Vistbyggðarráðs íslands er að vera leiðandi vettvangur á sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu og rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi.

Markmiðið er að hvetja til stöðugra umbóta í anda sjálfbærrar þróunar í mannvirkjagerð og skipulagi og stuðla þannig að því að þjóðin geti til framtíðar búið við heilbrigð og góð lífsskilyrði í vistvænni byggð.

Í stjórn Vistbyggðarráðs sitja
 
Aðalmenn
Kristveig Sigurðardóttir, formaður. Almenna verkfræðistofan
Elín Vignisdóttir, ritari.  Verkís
Eysteinn Einarsson, gjaldkeri. Efla
Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, meðstjórnandi. Reitir
Sverri Bollason, meðstjórnandi. VSÓ

Varamenn
Halldór Eiríksson, varamaður. Tark
Jón Sigurðsson, varamaður. Orkuveita Reykjavíkur