Fréttir
Virkjun Þjórsár við Núp og Urriðafoss
Landsvirkjun hefur að undanförnu kynnt skýrslur um mat á umhverfisáhrifum virkjana í Þjórsá við Núp og Urriðafoss. Fóru kynningarnar fram í Brautarholti á Skeiðum þann 13. maí, að Laugalandi í Holtum þann 14. maí og í stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg í gær. Voru allar kynningarnar vel sóttar af almenningi, en samtals mættu um 350 manns á kynningarnar.
Mat á umhverfisáhrifum virkjunar Þjórsár við Núp var unnið af Almennu verkfræðistofunni en verkfræðistofan Hnit vann matskýrsluna um Urriðafossvirkjun.
Áætlað afl Núpsvirkjunar er allt að 150MW og orkugeta um 1030 GWh/ári. Í skýrslu á mati á umhverfisáhrifum eru lagðar fram tvær jafngildar tillögur að virkjun þessa hluta Þjórsár. Annars vegar er ein virkjun, Núpsvirkjun, sem virkjar 56 m fall og hins vegar eru tvær virkjanir, Hvammsvirkjun og Holtavirkjun, sem virkja samtals allt að 52 m fall.
Sjónræn áhrif framkvæmdanna verða töluverð. Eitt eða tvö lón verða til og virkjanamannvirki munu setja nokkurn svip á umhverfið, einkum stíflur. Jafnframt mun rennsli um farvegi Þjórsár minnka talsvert á alllöngum köflum, sérstaklega að vetrarlagi. Jarðefnum sem til falla verður komið fyrir á landi og svæðið síðan grætt upp. Aur sem berst niður Þjórsá mun safnast fyrir í Hagalóni. Engar kerfisbundnar mælingar á aurburði hafa verið gerðar á svæðinu en áætlað er að 0,1 Gl (100.000 m³) af framburði setjist til í lóninu á ári.
Virkjun í þessum hluta Þjórsár mun hafa nokkur áhrif á lífríki árinnar, sérstaklega þar sem rennsli í farveginum minnkar. Talið er að með tryggingu lágmarksrennlis sem nemur 10-15 m³/s verði unnt að tryggja viðgang lífríkisins og að bygging fiskistiga í stíflu við Núp muni viðhalda aðgengi laxfiska að nýfengnum hrygningarsvæðum ofar í ánni.
Fyrirhugað framkvæmdarsvæði er hvorki á náttúruminjaskrá né friðlýst. Búðafoss og Hestafoss munu þó skerðast verulega eða hverfa.
almenna.is