Fréttir

24. ágúst 2004

Vinna við steypuvirki hafin í stöðvarhúshelli Kárahnjúkavirkjunar

Vinna við stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar gengur vel og er vinna við steypuvirki hafin. Fyrsta steypa var í byrjun ágúst, unnið er við kranabita og súlur. Á byggingartíma virkjunarinnar munu tveir 25 tonna kranar ganga á spori á kranabitanum. Almenna verkfræðistofan er aðili að KSJV samstarfshópi um framkvæmdaeftirlit með stöðvarhúsframkvæmdinni. Stöðvarhúsið er staðsett um einn kílómetra inn í Valþjófstaðarfjalli í Fljótsdal. Áætluð verklok stöðvar-hússins eru í árslok 2007.