Fréttir

24. ágúst 2010

Viðhald fasteigna

Nú um stundir er tækifæri fyrir eigendur fasteigna að ráðast í framkvæmdir. Ástæðan er m.a að umsvif á byggingarmarkaði hafa minnkað mikið og því er fjöldi góðra verktaka tilbúnir að taka að sér verk á betri kjörum fyrir fasteignaeigendur en sést hafa um langa hríð. Stjórnvöld hafa lagt viðhaldsframkvæmdum lið með því að hækka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu á verkstað úr 60% í 100% og einnig er virðisaukaskattur af vinnu ráðgjafa endurgreiddur að fullu sem ekki var gert áður. Af öllu þessu má ráða að aldrei hefur verið hagkvæmara fyrir eigendur fasteigna að ráðast í framkvæmdir.

Starfsmenn Almennu verkfræðistofunnar hafa það sem af er þessu ári skoðað og metið viðhaldsþörf fjölda fasteigna. Yfirleitt hefst vinnan á að fasteignin er skoðuð og viðhaldsaðgerðum raðað í forgangsröð, kostnaður metinn og niðurstöðurnar settar fram í skýrslu. Skýrslan er húseigendum leiðarljós við ákvarðanatöku um framkvæmdir.

Einnig nýtist vinnan við gerð útboðsgagna sem yfirleitt fylgja í kjölfarið ásamt útboði, samningum við verktaka og eftirliti á framkvæmdatímanum.
Það er um margt lærdómsríkt að skoða „hundgamla húskofa" þar kemur í ljós hvaða byggingaaðferðir og byggingafræðilegu lausnir standast tímans tönn og hverjar ekki. Einnig kemur oft í ljós munurinn á vönduðum vinnubrögðum og slökum, þó að sömu lausnir hafi verið notaðar.

Heildarniðurstaðan er þó alltaf sú sama að það er reglubundið viðhald sem skilar endingarbestu mannvirkjunum sem jafnframt eru ódýrust í viðhaldi.

Eitt af þeim verkum sem við höfum komið að er Kirkjubraut 11 á Akranesi þar sem mjög vel hefur tekist til og fornfrægt hús orðið sönn bæjarprýði að nýju eftir miklar endurbætur.
Í húsinu er nú rekinn veitingastaðurinn Kaupfélagið.