Fréttir

12. febrúar 2010

Viðhald 2010

Almenna Verkfræðistofan mun taka þátt í sýningunni VIÐHALD 2010 sem verður haldin dagana 5. 6. mars næstkomandi  í Vetrargarðinum í Smáralind. 

Sýningin verður stórglæsilegt upplýsingatorg þar sem einstaklingar, húsfélög og húseigendur fá svör við spurningum um allt það sem lýtur að viðhaldsmálum, svo sem greiningu vanda, réttindi og skyldur, fjármögnun, skipulag, tilboðsgerð, efniskaup, framkvæmd, ábyrgð og eftirlit.  Sérfræðingar á öllum sviðum upplýsa gesti sýningarinnar um hvaðeina sem brennur á þeim.

Fjöldi fagaðila verður á sýningunni, svo sem handverksmenn, verktakar, verkfræðingar, auk  fulltrúa opinberra aðila, ríkisskattstjóra, byggingarfulltrúa Reykjavíkur og Kópavogs, Íbúðalánasjóðs svo fátt eitt sé nefnt. Nú þegar hafa ríflega tuttugu aðilar tryggt sér pláss á sýningunni en skráning stendur ennþá yfir á vefsíðunnu www.vidhald2010.is. Að sýningunni stendur fyrirtækið Proline ehf. en styrktaraðili sýningarinnar er Múrbúðin.
 
Núna er rétti tíminn fyrir viðhaldið – 100% endurgreiðsla vsk.
Nú fá eigendur íbúðarhúsnæðis og sumarbústaða virðisaukaskatt sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald, endurgreiddan að fullu. Núna er því rétti tíminn til þess að láta hendur standa fram úr ermum því lögin eru í gildi út árið 2010.

www.vidhald2010.is