Fréttir

17. desember 2002

Veitukerfi í Reykjavík

Almenna verkfræðistofan hefur haft með höndum umsjón framkvæmda- og kostnaðareftirlits með endurnýjun gangstétta og veitukerfa í Reykjavík nú sem og síðustu ár. Framkvæmdir felast aðallega í endurnýjun á núverandi lögnum og gangstéttum. Helstu verkliðir í endurnýjun veitna eru vatnsveita, hitaveita, raflagnir, símalagnir og aðrar fjarskiptalagnir.

Þær götur sem aðal framkvæmdirnar voru við sumarið 2002, eru í Hlíðar-, Gerða- og Teigahverfi. Alls voru þetta 3 verk sem um var að ræða þetta sumarið og séð er fram á áframhaldandi vinnu á næsta ári og er undirbúningur þegar hafinn vegna þeirra verka.

Þeir aðilar sem standa að þessum framkvæmdum eru Orkuveita Reykjavíkur, Gatnamálastofa Reykjavíkur, Landsíminn og Lína-Net.

Umsjón með þessu eftirliti fyrir AV hefur verið í höndum Júlíusar Arnórssonar, byggingartæknifræðings.