Fréttir
19. nóvember 2007
Vatnsátöppunarverksmiðja í Ölfusi
Zenith International Ltd., ráðgjafar Icelandic Water Holdings um byggingu vatnsátöppunarverksmiðju að Hlíðarenda í Ölfusi, hefur valið Almennu verkfræðistofuna til þess að sinna eftirliti og samskiptum við verktaka og opinbera aðila. Almenna verkfræðistofan hafði aðkomu að verkefninu á skipulagsstigi og sá þá um gerð umhverfisskýrslu og ýmsar frumathuganir á vatnslindum. Bygging verksmiðjunnar hófst í lok ágúst og gert er ráð fyrir að verksmiðjan verði komin í notkun í ágúst árið 2008. Verksmiðjan er reist í alverktöku verktakafyrirtækisins Jáverk ehf. Um hönnun sjá arkitektar frá Teiknistofunni Tröð og verkfræðingar hjá VGK-Hönnun.
almenna.is