Fréttir
Val á dælum og hönnun og rekstur dælukerfa í fráveitum og vatnsveitum
Þessa dagana (4 og 5. nóv.) stendur yfir endurmenntunarnámskeið á vegum ENSÍM (Endur- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV) og menntamálanefnd Arkitektafélags Íslands. Yfirskrift námskeiðsins er: Val á dælum og hönnun og rekstur dælukerfa í fráveitum og vatnsveitum. Er námskeiðið einkum ætlað hönnuðum og rekstraraðilum, sem eru fyrst og fremst starfsmenn sveitarfélaganna en einnig dæluseljendur.
Almenna verkfræðistofan býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á þessu svið, sem Ólafur Árnason fagstjóri Véla- og rafmagnssviðs kom á framfæri á námsskeiðinu í fyrirlestri um orkunotkun í vatns- og fráveitum.
Í fyrirlestrinum greindi Ólafur frá reynslu AV af hönnun vatnsveitukerfa, fráveitukerfa, hreinsistöðva og dælustöðva með tilliti til heildarhagkvæmni í uppbyggingu og rekstri. Almenna verkfræðistofan hefur verið einn aðalráðgjafi Reykjavíkurborgar í fráveitumálum síðustu ár og má geta þess að AV hannaði báðar hreinsistöðvar Reykjavíkur sem og hreinsistöð Reykjanesbæjar auk nokkura dælustöðva og er nú með fráveitukerfið á Akranesi í forhönnun.
almenna.is