Fréttir

13. maí 2005

Unnur Helga Kristjánsdóttir ráðin fagstjóri

Unnur Helga Kristjánsdóttir byggingarverkfræðingur hefur verið ráðin fagstjóri virkjana- og samgöngusviðs Almennu verkfræðistofunnar hf. Unnur er í barnsburðarleyfi og kemur til starfa 16. júní næstkomandi. Magnús Magnússon framkvæmdastjóri mun sinna fagstjórastarfinu á meðan Unnur er fjarverandi.

Unnur Helga Kristjánsdóttir er byggingarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu (Dipl. Ing.) frá Universität Karlsruhe. Unnur réðst til Almennu verkfræðistofunnar árið 2000 og varð hluthafi árið 2003.