Fréttir

12. desember 2007

Umhyggja fær styrk

Almenna verkfræðistofan afhenti Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum, 500.000,- króna styrk í gær, en AV hefur á undanförnum árum lagt þörfum og góðum málefnum lið með fjárframlögum um jólaleytið.  Fjárframlagið verður notað til að styðja við og bæta hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Helgi Valdimarsson framkvæmdastjóri Almennu verkfræðistofunnar afhenti Rögnu K. Marinósdóttur, framkvæmdastjóra Umhyggju, styrkinn fyrir hönd fyrirtækisins.