Fréttir
12. nóvember 2004
Umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2004
LÍÚ efndi til umhverfisverðlauna í sjötta sinn á aðalfundi samtakanna 28.-29. október sl. Eins og undanfarin 2 ár var það umhverfissvið Almennu verkfræðistofunnar hf. sem sá um nauðsynlega forvinnu og mat á tilnefndum útgerðum. Þau atriði sem höfð voru til viðmiðunar við valið voru eftirfarandi:
- Stefnumótun í umhverfismálum og almennar aðgerðir
- Varnir gegn mengun
- Umgengni um auðlindina
- Annað sem skipti máli
Að þessu sinni var það Eskja hf. sem hlaut hæstu einkunn þeirra útgerða sem tilnefndar voru.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra afhenda Elfari Aðalsteinssyni, stjórnarformanni Eskju, verðlaunin á aðalfundi LÍÚ. Verðlaunagripurinn ber nafnið Brimandi, en höfundur þess er listamaðurinn Jónas Bragi Jónasson.
almenna.is