Fréttir

11. nóvember 2002

Umhverfisverðlaun LÍÚ

Á aðalfundi Landssambands Ísl. Útvegsmanna 31 október sl. fékk Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað umhverfisverðlaun LÍÚ fyrir árið 2002. Umhverfissvið Almennu verkfræðistofunnar hf. vann að undirbúningi og einkunnargjöf við mat á umhverfismálum félaganna fyrir LÍÚ.

Innsend gögn voru metin í samræmi við þann atriðalista sem gerður hafði verið og tekið mið af því vægi sem hverju atriði hafði verið gefið. Ennfremur voru fengnar frekari upplýsingar frá þeim fyrirtækjum sem þóttu koma til greina og haft var m.a. samband við heilbrigðiseftirlit og hafnaverði á viðkomandi stöðum.
Var það niðurstaðan að Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað fékk hæstu einkunn í áðurnefndu mati og telur Umhverfissvið AV. Síldarvinnsluna skara framúr þeim fyrirtækjum sem til greina komu til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2002.
Félagið hefur með umhverfisstefnu sinni markvisst hugað að umhverfismálum um langan tíma og umhverfi, skip og byggingar þess hafa verið og eru til mikillar fyrirmyndar.
Gott yfirlit er innan fyrirtækisins um þá þætti starfseminnar sem hugsanlega geta valdið neikvæðum áhrifum á umhverfið, þ.m.t. notkun kælimiðla, botnmálning skipa, sorpförgun, og notkun á slökkvimiðlum sem hafa lítil umhverfisáhrif. Félagið hefur unnið markvisst að því að taka upp kælimiðla sem hafa lítil umhverfisáhrif. Gripið hefur til eldsneytissparandi aðgerða á skipum félagsins og þá hefur umhverfisstjórnunarkerfi verið tekið upp að hluta til.
Félagið hefur tekið þátt í þróun á valvirkum veiðarfærum og nýtir vel aukaafurðir og annað sem til fellur við veiðar og vinnslu sjávarfangs.
Félagið uppfyllti allar lögboðnar skyldur tengdum umhverfismálum og hefur unnið að umhverfisfræðslu til starfsfólks með markvissum hætti á undanförnum árum.