Fréttir
Umhverfissvið AV var fengið til að meta gögn vegna Umhverfisverðlauna LÍÚ
Útgerðarfélag Akureyringa hlaut Umhverfisverðlaun Landssambands íslenskra útvegsmanna á aðalfundi þess sl. fimmtudag. Sæmundur Friðriksson, útgerðarstjóri ÚA veitti verðlaununum viðtöku.
Þetta er í fimmta skipti sem LÍÚ veitir umhverfisverðlaun til fyrirtækja í sjávarútvegi. Umhverfissviði Almennu verkfræðistofunnar hf. var falið að sjá um nauðsynlega forvinnu og mat í tengslum við verðlaunin. Við matið voru eftirfarandi þættir lagðir til grundvallar:
-Stefnumótun í umhverfismálum og almennar aðgerðir
-Varnir gegn mengun
-Umgengni um auðlindina
-Annað sem skipti máli
Rökstuðningur fyrir verðlaunaveitingunni er eftirfarandi:
“Er það niðurstaðan að Útgerðarfélag Akureyringa hf hefur fengið hæstu einkunn í áðurnefndu mati og telur Umhverfissvið Almennu verkfræðistofunnar hf. ÚA skara framúr af þeim fyrirtækjum sem tilnefnd voru til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2002. Hjá félaginu er tekinn til starfa umhverfisstjóri sem mun vinna markvisst að umhverfisstefnu félagsins á komandi árum. Innan fyrirtækisins er gott yfirlit yfir þá þætti starfseminnar sem hugsanlega geta valdið neikvæðum áhrifum á umhverfið, þ.m.t. notkun kælimiðla, botnmálning skipa og sorpförgun. Með fyrirbyggjandi viðhaldi véla í skipakosti félagsins hefur verið unnið að bættri eldsneytisnýtingu og endingu þeirra. Með þróun og notkun sinni á valvirkum veiðarfærum og góðri nýtingu á aukaafurðum og annars sem til fellur við veiðar og vinnslu sjávarfangs hefur félagið sýnt að því er umhugað um umhverfið og auðlindina. Þá hefur umhverfi, byggingar og skip félagsins um langa hríð verið og eru bæjarprýði.”
Listaverkið sem Sæmundur Friðriksson fékk afhent af þessu tilefni ber nafnið Ljósalda og er listamaðurinn Jónas Bragi Jónasson.
almenna.is