Fréttir

23. október 2008

Sundlaug Seltjarnarness

Þessa dagana er verið að bjóða út endurnýjun á laugarkerfum í Sundlaug Seltjarnarness, auk endurnýjun á loftræsikerfi fyrir tæknirými sundlaugarkerfa.   Almenna verkfræðistofan hf. sá um hönnun á lagna-, loftræsi- og stjórnkerfum og RTS um rafmagnshönnun auk þess sem þeir munu sjá um að forrita stjórnbúnað og samhæfa við núverandi hússtjórnarkerfi.

Laugarkerfin sem endurnýjuð verða eru gömul kerfi frá því Sundlaugin var byggð um 1980, það er kerfi fyrir aðallaug og barnalaug auk tveggja heitra potta. Fyrir fáum árum voru sett upp ný kerfi fyrir lendingarlaug, nuddpott og vaðlaug og verða þau að mestu leiti látin halda sér. Endurnýjuð kerfi verða sett upp á nýjum stað í tæknirýminu þannig að lokunartími lauga verður skammur.  Áætlað er að verkinu ljúki á þessu ári. 
 
Sundlaugarkerfin á Seltjarnarnesi hafa þá sérstöðu við flest önnur sundlaugarkerfi landsins að upphitun er með beinni innspýtingu hitaveitu inn á hringrásarkerfin. Þar sem hitaveituvatnið er salt eru laugarnar og pottarnir einnig saltir. Vegna þeirrar hefðar sem myndast hefur um þessar sundlaugar var ákveðið að þessu fyrirkomulagi með upphitun skyldi viðhaldið áfram.