Fréttir
23. júní 2010
Sundgestir fá fiskabúr á ný
Nýtt fiskabúr verður tekið í notkun í Vesturbæjarlaug í dag. Mímir, vináttufélag Vesturbæjar, hrinti í fyrra af stað söfnun til að endurreisa fiskabúr sem lengi var í anddyri Vesturbæjarlaugar í samráði við forsvarsmenn laugarinnar og Reykjavíkurborg. Safnað var í samskotabauka í anddyri laugarinnar og víðar í Vesturbæ.
Verndari söfnunarinnar var Gísli Halldórsson, arkitekt gamla búrsins, en hönnuðir þess nýja eru Bjarki Gunnar Halldórsson arkitekt, Margrét Leifsdóttir arkitekt og Sigurður Gunnarsson verkfræðingur hjá Almennu verkfræðistofunni.
Vígsla búrsins fer fram klukkan 17.30 í dag.
almenna.is