Fréttir

29. september 2000

Sumarferð STAV í ár var um Emstrur og Markarfljótsöræfi

Helgina 2-3. september lá leið STAV (Starfsmannafélag Almennu verkfræðistofunnar hf) upp Emstrur, um Tröllagjá, framhjá Markarfljótsgljúfrum og Hattfellsgili, allt merki um mikil jökulhlaup undan Mýrdalsjökli vestanverðum. Fjölmennt lið jarðfræðinga sá um leiðsögn og dugðu ekki færri en fimm til starfans. Gist var um kvöldið í Hvanngili. Á heimleiðinni var þefað af setfyllum fornra lóna sunnan Torfajökulssvæðisins. Þáttakendur voru hraktir út í ár og upp og ofan gil og brekkur í leit að öskulögum eða mosatægjum í leirbökkum, og undu glaðir við sitt. Tók þó steininn úr er fararsjórar áðu til kaffidrykkju á stormhröktum mel þar sem hvergi var skjól að finna. Allir komust þó heim um síðir og var ekki annað að sjá en ferðin hefði heppnast hið besta.