Fréttir

09. desember 2009

Styrkur frá Orkusjóði og íbúðalánasjóði

Ragnar Hauksson, vélaverkfræðingur hjá Almennu verkfræðistofunni, hlaut tvo styrki fyrir verkefnið:  Íslensk aðlögun að EPC – flokkunarkerfi orkunotkunar fyrir húsnæði.  Annars vegar tveggja milljón króna styrk úr Orkusjóði og hins vegar 0,9 milljónir úr Íbúðarlánasjóði. Verkefnið er að laga breskættaða orkuflokkunarkerfið EPC (e. Energy Performance Certificate) að íslenskum aðstæðum.

EPC-kerfið gefur til kynna orkunotkun húsa og eru þar gefnar einkunnir frá A til G í sérstöku skírteini. Með kerfinu á að vera unnt að bera saman orkunotkun í mismunandi húsum, en með fylgir greinargerð með hugmyndir að endurbótum, svo sem bættri einangrun veggja, þaks eða glugga, og áætlun um kostnað, um árlegan orkusparnað og bætta niðurstöðu úr EPC-greiningu. Takist aðlögun vel má ætla að verkefnið nýttist við mótun orkustefnu í byggingum á landsvísu, sem ekki síst nýttist íbúum á köldum svæðum.