Fréttir
Steinsteypuverðlaunin 2010

Steinsteypufélag Íslands leitar stöðugt nýrra leiða til að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar, enda steinsteypa eitt helsta byggingarefni íslendinga. Á steinsteypudaginn 19. febrúar 2010 voru steinsteypu- verðlaunin veitt í fyrsta skipti við hátíðlega athöfn. Dómnefnd skipuð fagaðilum (verkfræðingum og arkitektum) valdi úr tilnefndum mannvirkjum. Dómnefnd hafði að leiðarljósi að mannvirkið væri úr steinsteypu, væri framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna og handverks. Einnig átti mannvirkið að endurspegla þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu jafnframt því að innibera gæði, glæsileika og nytsemi og sýna augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt. Að síðustu var miðað við að mannvirkið væri byggt á síðastliðnum fimm árum og væri í notkun.
Fyrir valinu urðu göngubrýr yfir Hringbraut og Njarðargötu, hönnuðir af brúnum eru Steve Christer, Studio Granda og Baldvin Einarsson, Eflu. Verktaki var Háfell og Eykt og verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Vegagerðin.
Almenna verkfræðistofan hafði umsjón og eftirlit með framkvæmdinni og óskum við hlutaðeigendum innilega til hamingju með viðurkenninguna.
almenna.is