Fréttir
Stöðvarhúshellir - Fljótsdal
Almenna verkfræðistofan annast ásamt samstarfsaðilum framkvæmdaeftirlit með stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar fyrir Landsvirkjun undir merkjum KSJV. Verkið hófst á haustdögum 2003. Greftri á göngum og hellum lauk haustið 2004 og var stöðvarhúsinu skilað tilbúnu fyrir niðursetningu véla í áföngum, þeim síðasta í ágúst 2006.
Nú í haust eftir að allar vélar hafa verið settar niður hefur verið unnið að lokafrágangi á stöðvarhúsinu og verður honum lokið um n.k. áramót. Undanfarna mánuði hafa vélar virkjunarinnar verið prófaðar ein af annari. Endanlegar prófanir á vélum fara fram þegar vatni verður hleypt úr Hálslóni í lok október.
Frá því að verkið hófst hafa alls 12 starfsmenn AV verið við störf á verkstað um lengri eða skemmri tíma. Viðfangsefnin hafa verið mörg og margbreytileg eða allt frá túnrækt til túrbína.
Auk stöðvarhússins hefur KSJV haft umsjón með fjölda verksamninga má þar nefna uppsetningu véla og rafbúnaðar, stálfóðringu fallganga, uppsetningar á lokum og ristum, gröftur frárennslisskurðar, bygging og fullnaðarfrágangur stjórnstöðvar og þjónustubyggingar, lagnir og loftræsingar í stöðvarhúsi, göngum, Kárahnjúkastíflu og víðar. Samanlagður verktakakostnaður er vel á þriðja tug milljarða.
almenna.is