Fréttir
Stækkun fraktflughlaða
Flugmálastjórnin Keflavíkurflugvelli hyggst byggja 2. áfanga fraktflughlaða. Framkvæmdasýsla ríkisins hefur falið Almennu verkfræðistofunni og verkfræðistofunni Mott MacDonald á Englandi hönnun flughlaðsins og gerð útboðsgagna. Skipta stofurnar þannig með sér verkum að Mott MacDonald forhannar mannvirkið og rýnir útboðsgögn, en Almenna verkfræðistofan sér um útboðshönnun og gerð útboðsgagna auk þess að sjá um hönnunarstjórn.
Árið 2003 lét Flugmálastjórnin byggja 1. áfanga fraktflughlaða og var það fyrsta aðstaða fraktflugvéla við fraktþjónustufyrirtækin á flugvellinum, en áður þurfti að leggja fraktflugvélum í stæði við Leifsstöð og aka varningi yfir hlöðin.
Almenna verkfræðistofan var hönnuður 1. áfangans. Með síauknum umsvifum í fraktflugi er nú 1. áfangi þegar fullnýttur. Með 2. áfanga ríflega tvöfaldast frakt-flughlöðin á Keflavíkurflugvelli að stærð.
Í verkinu felst m. a. raflýsing og fráveita með hreinsibúnaði. Fyrirhuguð er sú nýjung að veita rafmagni í jörðu að hverju flugvélastæði og einnig verður nú lagt eldsneytiskerfi í allt fraktflughlaðið.
Rafhönnun sér um hönnun rafbúnaðar.
Framkvæmdin hefur ekki verið tímasett.
almenna.is