Fréttir
Sogsvirkjanir
Útboðsgögn fyrir Sog-26 og Sog-27 hafa verið lögð fram.
Sog-26 (Steingrímsstöð)
Útboðið felst í viðgerðum utanhúss á allri stöðinni m.a. á stöðvarhúsi, inntakslokuhúsi, fallpípum og þróarveggjum. Ennfremur er ráðist í endurbætur innanhúss á ýmsum brunatæknilegum þáttum og endurnýjun klæðningar í vélasal.
Verkið verður unnið á árinu 2001.
Sog-27(Írafossstöð)
Útboðið skiptist í fjóra megin verkþætti sem eru:
1. Bygging þjónustuskála og frágangur stjórnstöðvar að utan og breytingar og endurbætur í stjórnstöð að innan. Einnig gerð aðkomuvegar og plana ásamt frágangi lóðar við þjónustuskála.
2. Viðgerðir utanhúss á inntakslokuhúsinu.
3. Lenging aðkomuganga um 32 metra og endurbætur núverandi akstursleiða niður í göngin, ásamt landmótun við aðkomugöngin og lagfæringu vegar að þeim frá stjórnstöð.
4. Framkvæmdir, sem miða að því að lyfta geti farið niður á hverflahæð stöðvarhússins.
Verkið verður að megin hluta unnið á árinu 2001 og að fullu lokið í upphafi árs 2002.
almenna.is