Fréttir
05. nóvember 2010
Sambíóin opna í Egilshöll
Sambíóin hafa opnað eitt fullkomnasta kvikmyndahús landsins í Egilshöll. Öll aðstaða og tækni er eins og best verður á kosið. Fjórir salir eru í húsinu sem eru frá rúmlega 100 sætum minnst og upp í rúmlega 400 sæta mest. Allir stólar eru sérlega þægilegir og rými milli sæta er meira en gengur og gerist.
Almenna verkfræðistofan hafði umsjón með framkvæmdum við innréttingu kvikmyndahússins fyrir hönd Reginns.
Almenna verkfræðistofan óskar Sambíóunum til hamingju með nýja kvikmyndahúsið.
almenna.is