Fréttir
SOGSVIRKJANIR ÓSKEMMDAR
Svo virðist vera sem þau mannvirki Sogsvirkjana sem AV hefur á síðustu árum verið að reikna og endurbæta, með tilliti til áraunar vegna jarðskjálfta hafi staðist prófið með prýði, enn sem komið er.
Þannig greinir Landsvirkjun frá ástandinu á mbl.is í morgun:
Engar sjáanlegar skemmdir á mannvirkjum Landsvirkjunar
Engar sjáanlegar skemmdir hafa orðið á mannvirkjum Landsvirkjunar í jarðskjálftanum í nótt. Komið hefur í ljós að samtals sex háspennumöstur hafa sigið í skjálftanum á þjóðhátíðardaginn. Viðgerðir munu hefjast í dag og er búist við að þeim ljúki á morgun.
Þorsteinn Hilmarsson, talsmaður Landsvirkjunar, segir að starfsmenn fyrirtækisins hafi gengið meðfram háspennulínunum og kannað virkjanirnar í nótt, en mannvirkin virðist öll hafa staðið af sér skjálftann. Hann segir þó að kanna þurfi málið nánar í dag.
Fljótlega eftir skjálftann á laugardaginn kom í ljós að þrjú háspennumöstur hefðu sigið 20-30 sm. Í gær könnuðu verkfræðingar línurnar nánar og komust þá að því að þrjú möstur til viðbótar hefðu sigið lítillega. Þorsteinn segir að meginhluta viðgerðanna verði lokið í dag, en þær verða kláraðar á morgun.
almenna.is