Fréttir

13. desember 2006

Söfnun til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Föstudaginn 3. nóvember sl. stóðu starfsmenn AV fyrir bleikum degi.  Starfsmenn voru hvattir til að bera bleikan lit í fatnaði eða fylgihlutum og fór þátttakan fram úr björtustu vonum. Þeir allra hörðustu mættu á bleikum bíl, sumir með bleika hárkollu og aðrir uppklæddir sem bleiki pardusinn.
Bleiki dagurinn var ekki aðeins haldinn til að lífga upp á svart-hvítan hversdagsleikann, heldur minnti hann einnig á þá samfélagslegu ábyrgð sem fyrirtæki og starfsmenn þess bera.

Í tengslum við þemadaginn efndu starfsmenn AV til söfnunar til styrktar Bleiku slaufunni, árveknisátaki Krabbameinsfélagsins um brjósta-krabbamein. Bleiki liturinn hefur verið í aðalhlutverki í því átaki og þótti við hæfi að styðja við bakið á samtökunum. Söfnunarfé ásamt viðbót frá Almennu verkfræðistofunni, alls 175.000 krónur var afhent þann 30. nóv. sl. Þá kom í heimsókn Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, og tók við framlaginu. Spjallaði hún í framhaldinu við starfsmenn yfir kaffibolla. Voru starfsmenn almennt ánægðir með uppátækið og ánægðir með að fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum.