Fréttir
Sérfræðingar okkar í Smáralind
Sérfræðingar Almennu verkfræðistofunnar verða á sýningunni VIÐHALD 2010 sem haldin er um þessa helgi (5. 6. mars) í Vetrargarðinum í Smáralind.
Sýningin verður stórglæsilegt upplýsingatorg þar sem einstaklingar, húsfélög og húseigendur fá svör við spurningum um allt það sem lýtur að viðhaldsmálum, svo sem greiningu vanda, réttindi og skyldur, fjármögnun, skipulag, tilboðsgerð, efniskaup, framkvæmd, ábyrgð og eftirlit. Sérfræðingar á öllum sviðum upplýsa gesti sýningarinnar um hvaðeina sem brennur á þeim.
Núna er rétti tíminn fyrir viðhaldið – 100% endurgreiðsla vsk.
Nú fá eigendur íbúðarhúsnæðis og sumarbústaða virðisaukaskatt sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald, endurgreiddan að fullu. Núna er því rétti tíminn til þess að láta hendur standa fram úr ermum því lögin eru í gildi út árið 2010.
www.vidhald2010.is
almenna.is