Fréttir

22. maí 2001

Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Almenna verkfræðistofan hf. mun aðstoða Línuhönnun við hönnun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði frá Sólvangi vestur fyrir Hvammabraut. Um er að ræða fjögurra akreina vegi með mislægum gatnamótum, annars vegar við Lækjargötu og hins vegar við Kaldárselsveg ásamt tengingum, þrennum undirgöngum og tveimur göngubrúm. Vegagerðin hefur ákveðið að taka því tilboði og er Línuhönnun aðalverktaki hönnunar og fer með verkefnisstjórn.

 

Hlutur AV í verkinu felst einkum í veghönnun gatnamóta við Kaldárselsveg ásamt tilheyrandi tengingum og hönnun undirganga.
Verkefnisstjóri AV í þessu verki verður Kristinn H. Guðbjartsson verkfræðingur.