Fréttir
Rafræn ferðavenjukönnun
Fyrirtækið SagaTraffic sem er í eigu Almennu verkfræðistofunnar og Sagasystems hlaut á dögunum styrk úr tækniþróunarsjóði Rannís. Fyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum og þróun á umferðartengdri upplýsingamiðlun.
Styrkurinn gerir fyrirtækinu kleift að hanna og þróa aðferð til að kanna ferðavenjur með nákvæmari og hagkvæmari hætti en áður hefur verið gert. Nýjungin felst m.a. í notkun á GPS tækni við ferðaskráningar en það eykur áreiðanleika upplýsinga til mikilla muna. Áætlað er að verkefnið taki tvö ár í framkvæmd. Að verkefninu standa, auk SagaTraffic, sérfræðingar frá há-skólum og fyrirtækjum sem tengjast rannsóknum og þróun af þessu tagi. Niðurstöður ferðavenjukannana eru t.d. notaðar við gerð umferðarspálíkana og við stefnumörkun stjórnvalda í upp-byggingu samgöngumannvirkja og umferðarstýringu. Þróun umferðar undanfarna áratugi gerir kröfu um betri og samfelldari upplýsingaöflun.
almenna.is