Fréttir

02. nóvember 2010

Ráðstefna um orkunýtni í byggingum

Iðnaðarráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um orkunýtni í byggingum í samstarfi við Orkustofnun, Orkusetur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Neytendastofu og Samtök iðnaðarins.

Staður: Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík
Stund: 11. nóvember 2010, kl. 13:00-16:00
Fundarstjóri: Helga Barðadóttir,
sérfræðingurí iðnaðarráðuneyti

Dagskrá:

13:00-13:10         Ávarp iðnaðarráðherra Katrínar Júlíusdóttur
13:10-13:30         Orkusparnaður á Íslandi: Einar Helgason, Almenna verkfræðistofan.
13:30-13:50         Landsvarmi - möguleikar varmadæla: Þorsteinn I. Sigfússon, forstj.
                               Nýsköpunarmiðstöðvar Ísl.
13:50-14:10         Orkusparnaður í byggingum: Andrés Þórarinsson, framkv.stj.
                               Verkfræðistofunnar Vista
14:10-14:30         Upplýsingaskylda um orkunotkun heimilistækja:  Tryggvi Axelsson, forstj.
                               Neytendastofu
 
14:30-15:00         Kaffi
 
15:00-15:55         Hvað þarf til að ná fram meiri orkunýtni:
Lausnir og reynslusögur fyrirtækja sem náð hafa árangri
 
- Drekaflug: Þórdís Rós Harðardóttir: Hlutverk dagsbirtu í lýsingu innanhúss.
- ICEconsult: Ragnar Gunnarsson: Orkustýring bygginga.
- Samverk: Ragnar Pálsson framkv.stjr.: Gler og orkunýtni.
- Osram: Arnar Þór Hafþórsson: Sparperur – góður kostur?
- Verkís: Guðjón Ólafsson: Orkunýting í húsnæði Háskólans í Reykjavík
 
15:55-16:00         Ráðstefnulok – samantekt fundarstjóra
 
 
Allir áhugasamir eru velkomnir og er þátttaka án endurgjalds en nauðsynlegt er að skrá þátttöku.

Skráning: http://www.orkustofnun.is/radstefna-um-orkusparnad
eða hjá Guðrúnu Bjarnadóttur á Orkustofnun, í síma 569-6002.