Fréttir

30. júní 2010

Orkugreining á Húsi íslenskra fræða

Almenna verkfræðistofan hefur fengið það verkefni að greina ýmsa þætti varðandi orkuflæði  í Húsi íslenskra fræða sem nú er í hönnun.  Markmiðið er að leita leiða til að minnka orkunotkun og framkvæmdakostnað og ná góðri innivist í byggingunni.  Til greiningarinnar er notaður orkuhermunarhugbúnaður til að prófa áhrif ýmissa valkosta í hönnun á orkunotkun og gæði innivistar og aðstoða við val bestu lausna.  Þar má nefna stærð gluggaflata og eiginleika glers, staðsetningu og þykkt einangrunar, og útfærslu og stýringu hita- og loftræsikerfa. 

Sérstaklega verður athugaður sá möguleiki að byggja glerþak yfir aflokaðan garð í byggingunni sem lokaður er af með glerveggjum á alla vegu.   Mikið sólarálag verður á aðliggjandi rými sem kallar á öflug loftræsi- og kælikerfi með tilheyrandi kostnaði og orkunotkun.   Með glerþaki yfir garðinn er mögulegt að skerma af stóran hluta sólarorkunnar ofan við garðinn og minnka þannig varmaálagið á aðliggjandi rými.  Sé hægt að halda
garðinum nógu svölum með vel útfærðri loftun gæti verið mögulegt að tryggja góða innivist án vélrænna kerfa.  Einnig verður skoðaður annar mögulegur ávinningur vegna þaks, s.s. að gler-veggirnir geti verið einfaldari, ódýrari og viðhaldsléttari, og upphitunarþörf aðliggjandi rýma minni.