Fréttir
Opnun Háskólatorgs
Háskólatorg, Gimli og Tröð voru formlega vígðar 1.des. s.l. að viðstöddu fjölmenni. Byggingarnar eru samtals um 10.000 m² að stærð og hýsa fjölþætta starfsemi Háskólans, s.s. bóksölu, nemendaskráningu, þjónustuborð, Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaráð, tölvuver, lesaðstöðu, skrifstofur ýmis konar og margt fleira.
Við opnunina ávarpaði mennta-málaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, gesti og það gerði einnig Kristín Ingólfsdóttir rektor skólans, Dagný Ósk Aradóttir, formaður Stúdentaráðs, Haukur Agnarsson, formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta og Gunnar Sverrisson, forstjóri Íslenskra Aðalverktaka. Einnig afhjúpaði Björgólfur Guðmundsson, stjórnar-formaður Háskólasjóðs Eimskips listaverk Finns Arnar Arnarssonar
“Vits er þörf þeim er víða ratar”.
Verkið er alútboð og hófst vinna við hönnunina á haustdögum 2005 og var fyrsta skóflustungan tekin að Háskólatorgi 6. apríl 2006.
Gert er ráð fyrir að öllu verkinu
verði lokið í febrúar 2008.
Almenna verkfræðistofan er aðili að vinningstillögu um Háskólatorg HÍ, sem verkfræðiráðgjafar á sviði grundunar, burðarvirkjahönnunar, hönnunar lagna- og loftræsikerfa og hljóðvistarráðgjafar.
almenna.is