Fréttir
13. ágúst 2002
Norðlingaölduveita - Úrskurður Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur samþykkt byggingu Norðlingaölduveitu í 575 og 578 metra hæð yfir sjó, eins og framkvæmdin er kynnt í framlögðum gögnum framkvæmdaraðila en með sex skilyrðum.
Almenna verkfræðistofan hf. hefur séð um verkhönnun Norðlingaölduveitu ásamt Hönnun hf. og Rafhönnun hf. Þáttur AV hefur aðallega snúið að vatnafræði- og jarðtæknilegum athugunum og hönnun stíflumannvirkja.
Kærufrestur vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar er til 18. september næstkomandi. Úrskurðurinn liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar.
almenna.is