Fréttir

16. maí 2001

Nýbygging Marels

AV hefur tekið að sér verkefnisstjórn/byggingarstjórn fyrir Friðjón og Viðar efh., en þeir eru aðalverktakar við nýbyggingu Marels í Garðabæ. Um er að ræða verksmiðju- og skrifstofuhús, alls um 14.200 m2, og áætlað er að heildarkostnaðurinn verði 1-1,1 milljarður króna miðað við verðlag í febrúar 2001. Um 10.200 m2 verða nýttir til framleiðslu og 4000 m2 ráðstafað fyrirskrifstofur. Starfsemi Marels hefur hingað til farið fram á tveimur stöðum í Reykjavík, að Höfðabakka og á Tunguseli. Verkið hófst í apríl 2001 og á að ljúka á 15 mánuðum.

Verkefnisstjóri AV er Emil Ágústsson, tæknifræðingur.