Fréttir
Ný botnloka við Sauðafellslón
Nú nýverið tók Landsvirkjun í notkun nýja botnloku við Sauðafellslón fyrir norðan Þórisvatn. AV kom að eftirliti með uppsetningu lokunnar. Um er að ræða 2,5x2,5m hjólaloku, sem kemur í stað loku sem komin var til ára sinna. Var lokan farin að leka og auk þess mjög seinlegt og fyrirhafnarsamt að opna hana og loka.
Sumarið 2002 voru steyptir inn leiðarar og þéttirammi fyrir nýju lokuna, en uppsetning sjálfrar lokunnar og fylgibúnaðar fór fram í sumar. Um leið og uppsetningu og prófunum var lokið var farið að hleypa vatni um botnrásina niður Köldukvísl, enda vatnsstaða með hæsta móti og verið að vinna að hækkun stíflu og yfirfalls Sauðafellslóns. Þó lokan sé komin í rekstur er enn nokkrum minni háttar frágangsverkum ólokið, sem unnið verður að á næstu vikum.
RST-Net ehf sá um smíði og uppsetningu lokunnar, sem hönnuð var af VST. Eftirlit með uppsetningu og prófun lokunnar var í höndum AV, í samvinnu við VSÓ og Lahmayer International.
almenna.is