Fréttir

22. ágúst 2002

Núpsvirkjun - Verkhönnun - Umhverfismat

Almenna verkfræðistofan hefur að undanförnu annast verkhönnun vegna fyrirhugaðrar vatnsaflsvirkjunar í Þjórsá við Núp, ásamt þýska fyrirtækinu Lahmeyer International og Rafhönnun hf. AV hefur einnig verið leiðandi og haft með höndum ritstjórn á skýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdanna.
Þáttur AV í verkhönnuninni hefur aðallega snúið að verkefnastjórnun, vatnafræði- og jarðtæknilegum athugunum, hönnun stíflumannvirkja, almennu fyrirkomulagi virkjananna, kortagerð og kostnaðaráætlunum.

 

Áhrifasvæði framkvæmdarinnar nær til tveggja sveitarfélaga, Gnúpverjahrepps í Árnessýslu og Holta- og Landssveitar í Rangárvallasýslu. Kynntar hafa verið tvær mismunandi útfærslur virkjunarinnar. Önnur útfærslan gerir ráð fyrir virkjun í einu þrepi og hin gerir ráð fyrir virkjun í tveimur þrepum. Meðalrennsli Þjórsár við Núp er um 320 m³/sek og virkjanlegt fall er um 56 m. Afl Núpsvirkjunar yrði allt að 125 MW og árleg orkuvinnslugeta allt að 1000 GWh.
Hönnunin miðar að því að áhrif virkjunarinnar á umhverfið verði sem minnst. Helstu mannvirki verða neðanjarðar nema stíflumannvirki sem verða fremur smá í sniðum og þar með reynt að halda í lágmarki því landsvæði sem hverfur undir vatn.

Áætlað er að matsskýrslan og verkhönnunnarskýrslan verði gefnar út á haustmánuðum.