Fréttir
14. mars 2001
Núpsvirkjun
Almenna verkfræðistofan hefur fyrir hönd Landsvirkjunar hafið mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðar virkjunar í Þjórsá við Núpsfjall í Gnúpverjahreppi sem nefnd hefur verið Núpsvirkjun. Um þessar mundir er unnið að gerð matsáætlunar og verið er að semja við ýmsa aðila um rannsókanar- og skipulagsvinnu vegna matsins. Forhönnun virkjunarinnar er unnin samhliða matinu en með því aukast verulega möguleikar á að tekið sé tillit til umhverfisþátta við hönnunina. Gert er ráð fyrir að matsáætlun liggi fyrir í lok maí og að matsskýrsla verði lögð inn til Skipulagsstofnunar fyrir árslok 2001. Verkið er unnið í náinni samvinnu við verkfræðistofuna Hnit sem jafnhliða vinnur að mati á umhverfisáhrifum virkjunar við Urriðafoss neðar í Þjórsá.
almenna.is