Fréttir
Náttúrufræðistofnun Íslands
Hús Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) að Urriðaholti í Garðabæ er nú fullbyggt og verður það tekið í notkun í nóvember 2010. Arkís er arkitekt byggingarinnar og hefur Ístak séð um framkvæmdir. AV sá um hönnun burðarvirkis og lagna. AV hafði þá um nokkurt skeið hannað lagnir og loftræsikerfi í þrívídd en vantað hafði að aðrir hönnunarþættir væru hannaðir í 3D. Í samvinnu við Arkís var ákveðið að koma allri hönnun hússins í þrívídd með því að „Slim BIM´a" hönnunina (sjá nánar fréttabréf AV frá ágúst 2009).
Vegna hins vistvæna heildarskipulags Urriðaholts og tengingar NÍ við náttúru íslands hefur við hönnun byggingarinnar verið lögð sérstök áhersla á vistvæna og sjálfbæra hönnun. Snemma í hönnunarferlinu var farið af stað með LEED (Leadership in Energy and Environ-mental Design) kerfið, sem er vottunarkerfi fyrir vistvæna hönnun mannvirkja. Kerfið er bandarískt og miðast við þarlenda staðla (sjá nánar fréttabréf AV feb 2008).
Snemma í hönnunarferlinu var hætt við að votta bygginguna skv. LEED kerfinu, aðallega vegna mikils kostnaðar við vottunina. Eftir að hönnun lauk var síðan ákveðið að fá umhverfisvottun ný-byggingar NÍ skv. breska kerfinu BREEAM (Building Research Establish-ment Environmental Assessment Method). Kerfinu er ætlað að greina og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum bygginga allt frá hönnun og byggingu þeirra til rekstrar. BREEAM hefur fengið útbreiðslu út fyrir Bretland, enda býður BREEAM International upp á að kröfur séu aðlagaðar fyrir mismunandi lönd eða landssvæði.
Ákvörðun um að fara með NÍ-bygginguna í BREEAM vottun var tekin eftir að hönnun var lokið og því verður vottunin aðeins á fullbúinni byggingu (post construction stage). Arkís samdi við AV um öflun og vinnslu sönnunar-gagna vegna lagna- og burðarþolshluta BREEAM vottunar. Vaninn er í BREEAM að nýbyggingar séu vottaðar á hönnunarstigi (design stage) og nú nýlega hefur verið bætt við vottun eftir að byggingin er fullbúin (post construction stage), enda ekki alltaf sem framkvæmd er í fullkomnu samræmi við hönnun.
Almenna verkfræðistofan hefur í rúmt ár haft formlegt leyfi til þess að votta vistvæna hönnun samkvæmt BREEAM aðferðinni. Tveir starfsmenn AV hafa réttindi til að annast ráðgjöf og vottun á vistvænni hönnun bygginga. Á síðunni http://www.greenbooklive.com er hægt að sjá lista yfir öll fyrirtæki og rekstraraðila sem hafa leyfi til að votta samkvæmt BREEAM.
almenna.is