Fréttir
04. desember 2000
Nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
Almenna verkfræðistofan hf. og Fjarhitun hf. hafa tekið að sér hönnun lagna og loftræsikerfa fyrir nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi að undangengnu forvali og útboði. Heildarstærð hinna nýju höfuðstöðva er um 21.000 m². AV var einnig lægstbjóðandi í hönnun lóðar, sem felur m.a í sér hönnun gatna og bílastæða innan lóðarinnar. Áætlað er að jarðvinna hefjist í jan. 2001 og uppsteypa í maí 2001. Stefnt er að því að höfuðstöðvar Orkuveitunnar verði tilbúnar til notkunar í júní 2002. Umsjón með verki AV hefur Ólafur Árnason vélaverkfræðingur.
almenna.is