Fréttir
Ný ráðuneytisbygging á Stjórnarráðsreitnum
Almenna verkfræðistofan hf. hefur undirritað samning um aðild að hönnunarhóp fyrir nýja ráðuneytisbyggingu við Sölvhólsgötu, en hönnunarsamkeppni um þá byggingu var haldin sl. vor, sjá hér.
Fyrstu verðlaun féllu í hlut þýsku arkitektastofunnar Franken Architekten GmbH, sjá þeirra tillögu hér. Arkitektastofan hefur nú myndað hönnunarhóp með arkitektastofunni Arkís og verkfræðistofunum Osd (office for structural design GmbH), Almennu verkfræðistofunni og Rafteikningu um hönnun ráðuneytisbyggingarinnar.
Byggingin samanstendur af um 4100 m² bílastæðakjallara á tveimur hæðum og um 5000 m² skrifstofurými á fjórum hæðum, sem hýsa mun þrjú ráðuneyti, þ.e. dóms- og kirkjumálaráðuneytið, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og umhverfisráðuneytið.
Stefnt er að því að bjóða út verkið fullhannað 1. desember 2003, og er áætlaður verktakakostnaður um 1,3 milljarðar króna.
Almenna verkfræðistofan mun annast hönnun lagna- og loftræsikerfa, en auk þess mun stofan að öllum líkindum aðstoða Osd (office for structural design GmbH) við hönnun burðarvirkja.
almenna.is