Fréttir

26. nóvember 2003

Mislæg vegamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar

Almenna verkfræðistofan hf. vinnur nú að frumdrögum að mislægum vegamótum Hringvegar og Nesbrautar (Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar) í Reykjavík og að tvöföldun Hringvegar frá Rauðavatni að Nesbraut. Frumdrögum að 1. áfanga vegamótanna er lokið og verða gögnin grunnur fyrir útboð á verkhönnun sem nú er fyrirhugað hjá Vegagerðinni. Byggja á í 1. áfanga trompetvegamót (þriggja arma vegamót) með brú á Nesbraut, sem eru þannig gerð að möguleiki er síðar á að tengja vegamótin við byggð í landi Keldna (fjögurra arma vegamót). Tvöföldun Hringvegarins frá Rauðavatni að Nesbraut er á samgönguáætlun 2007-2010. Vinnustofan Þverá hefur séð um umferðartækni vegna frumdraganna.