Fréttir

04. desember 2008

Mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar opnuð

Síðastliðin laugardag 29. nóvember voru mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar opnum fyrir  umferð. Verktaki skilaði verkinu um sex mánuðum fyrir tímann. Gatnamótin eru þau fyrstu sinnar tegundar þar sem myndað er hringtorg ofan við Reykjanesbraut með tveim brúm. Umferðin flæðir því óhindrað undir brýrnar og um hringtorg án nokkurra ljósastýringar.

Verktaki við framkvæmdirnar eru Suðurverk og Skrauta. Almenna verkfræðistofan hefur séð um umsjón og eftirlit með framkvæmdunum fyrir Vegagerðina.
Áfram verður unnið við framkvæmdir fram á sumur, því en er ólokið við hljóðdeyfivegg, göngustíga og annan jaðarfrágang.

Kristján Möller samgöngumálaráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Gunnar Birgisson bæjarstjóri Kópavogs og Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur Garðabæjar  leystu táknrænan umferðarhnút áður en umferð var hleypt á og bílarnir byrjuðu að flæða í allar áttir.
Almenna verkfræðistofan óskar Vegagerðin til hamingju með glæsilegt mannvirki.