Fréttir

21. ágúst 2000

Mislæg gatnamót Hringvegar og Víkurvegar

AV og VSÓ hefur verið sameiginlega falið að hanna mislæg gatnamót á mótum Hringvegar (Vesturlandsvegar) og Víkurvegar í framhaldi af útboði og hæfnismati. Verkkaupi er Vegagerð ríkisins og Reykjavíkurborg.

Verkið felst í hönnun brúar yfir Vesturlandsveg og hönnun aðliggjandi rampa og hringtorgs. Gert er ráð fyrir steyptri brú, með tveimur akreinum og göngubraut. Hún mun spanna yfir tvö höf og verður um 60-70 metrar að lengd.

Umferð um Vesturlandsveg verður án ljósa þegar þessari framkvæmd lýkur og gatnamótin tengja hið nýja hverfi í Grafarholti við vegakerfið á höfuðborgarsvæðinu.