Fréttir
Matsdeild Almennu verkfræðistofunnar
Almenna verkfræðistofan (AV) hefur í rúmlega sjö ár starfrækt sérstaka matsdeild innan verkefna- stjórnunarsviðs fyrirtækisins. Verkefni matsdeildar hafa verið af margvíslegum toga, jafnt mat á ástandi mannvirkja, kostnaðarmat framkvæmda og markaðsmat fasteigna en helstu viðskipatvinir deildarinnar eru ríkisstofnanir og opinber hlutafélög, sveitarfélög, tryggingarfélög, fasteignafélög, fyrirtæki og einstaklingar.
Stærsta einstaka verkefnið sem matsdeildin hefur unnið á liðnum árum er mat á tjóni vegna jarðskjálftans á Suðurlandi árið 2008 sem unnið var fyrir Viðlagatryggingu Íslands. Þegar mest lét voru 24 matsmenn að störfum við tjónamatið, en að jafnaði eru 4 stöðugildi hjá fyrirtækinu vegna matstarfa.
Hluti starfsmanna matsdeildarinnar hafa á liðnum árum unnið talsvert fyrir Héraðsdómsstóla þar sem þeir hafa verið dómkvaddir við ýmis mál sem tengjast þeim sviðum sem þeir vinna við.
Matsdeild AV er stjórnað af Auðunni Elísyni og Ragnari Ómarssyni en Auðunn var síðla vetrar kosinn formaður Matsmannafélag Íslands og Ragnar varaformaður.
Matsdeild AV hefur í samstarfi við Matsmannafélag Íslands og Háskólann í Reykjavík og síðar Háskóla Íslands unnið að eflingu þekkingar á matsfræðum með því að sinna umsjón og kennslu í framangreindum háskólum. Ragnar Ómarsson hefur verið kennslustjóri nánast frá upphafi.
Vinna við ritun námsbóka fyrir kennslu í matsfræðum er hafin en upphaf þess er að uppfæra og endurgera rit Stefáns Ingólfssonar, Eignamat. Einnig er hafin vinna við að útbúa kennslubækur fyrir skoðun fasteigna sem kennd er í tveimur áföngum hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Fyrir áramót verður unnið að því að rita kennslubækur fyrir áfangana Kostnaðarmat I og II og Markaðsmat. Almenna verkfræðistofan mun standa straum af þeim kostnaði sem fellur til við ritun ofangreindra kennslubóka og gefa þær út. Með þessu vill Almenna verkfræðistofan sína í verki að hún leggur metnað í að efla og styrkja þekkingu á matstörfum almennt og að veita fagfólki í byggingargeiranum fleiri möguleika á að afla sér þekkingar á sviði matsfræða en verið hefur fram að þessu.
almenna.is