Fréttir
15. október 2009
Leiknir félagshús
Á liðnu vori var tekið í notkun félagshús íþróttafélagsins Leiknis við Austurberg 1 í Reykjavík. Húsið er 700 m2 og 3385 m3. Í því eru 5 búningsklefar ásamt sturtuklefum, þvottahús, aðstaða fyrir framkvæmdastjóra og samkomusalur fyrir 100 manns með eldhúsi.
Salurinn er hugsaður fyrir félagsstarfsemi og til útleigu. Framkvæmdum við húsið er lokið en lóðafrágangur bíður betri tíma.
Leiknir hefur sína aðstöðu í efra Breiðholti. Á svæðinu eru íþróttavellir m.a upphitaður knattspyrnuvöllur með gervigrasi. Enginn búningsaðstaða (eða mjög léleg) var við vellina, því ákvað Reykjavíkurborg að byggja félags- og búningsaðstöðu fyrir Leiknismenn og fól Almennu verkfræðistofunni að hafa umsjón með framkvæmdum fyrir hönd borgarinnar.
Framkvæmdir hófust í janúar 2008 og lauk í apríl 2009.
Arkitekt hússins: Albína Thordarson
Burðarþol og lagnir: Línuhönnun
(Efla) verkfræðistofa
Raflagnir: Raftæknistofan hf.
almenna.is