Fréttir
Lagarfosslína 1
Lagarfosslína 1 er 66 kV háspennulína sem liggur frá Lagarfossvirkjun að tengivirki við Eyvindará, en línan var byggð árið 1971 af Rarik. Við stækkun Lagarfossvirkjunar mun aflflutningur um Lagarfosslínu 1 aukast mikið og er því fyrirhugað að setja sverari leiðara á línuna. Í kjölfar ástandsskoðunar var ákveðið að endurbyggja línuna á um 5 km kafla við tengivirkið við Eyvindará vegna mikillar ísingarhættu þar og leggja línuna í jörð á þeim kafla.
Verkefni Almennu verkfræðistofunnar felst í gerð útboðsgagna fyrir jarðvinnu við jarðstreng. Í því skyni hefur verið gerð jarðkönnun á strengleiðinni með Cobra-bor svo unnt sé að magntaka klöpp í skurði og fá þannig raunhæfara mat á kostnað við framkvæmdina.
Flutningsgeta rafstrengja í jörðu ræðst að miklu leyti af kæligetu umhverfisins. Skiptir því miklu að varmaleiðni lagnasands sé sem best. Því hefur sandur úr námum á svæðinu verið kannaður með tilliti til þessa.
almenna.is